Saturday, September 13, 2008
Nýr staður...
Ég hef ákveðið að blogga bara um Iðu og hennar ævintýri á mínu bloggi... alveg ómögulegt að vera með svona margar bloggsíður..

Endilega kíkja við - Kíkja hingað!
posted by Gógó @ 4:35 PM   0 comments
Wednesday, June 11, 2008
Sumar fréttir...
Við mæðgur kíktum alls ekki fyrir svo löngu á Skoppu og Skrítlu. Mér fannst sýningin frekar súr og er nokkurn vegin viss um að Iða hafi verið á sama máli - hún allavega pantaði að sjá Gosa aftur næst!!!




Við vorum frekar snemma í því og byrjuðum því í bakarí og á róló... endalaus hamingja :)

posted by Gógó @ 3:40 AM   0 comments
Monday, March 31, 2008
Iða 2 ára

Á tveggja ára afmælisdaginn, svo sæt og fín!


Besta vinkonan Isabella


Sætastar!


Þar til næst :)
posted by Gógó @ 2:34 AM   0 comments
Friday, February 08, 2008
Iða skrappari


Nú er Iðan farin að taka þátt í hobby móðurinn af lífi og sál...
posted by Gógó @ 6:31 AM   5 comments
Friday, December 21, 2007
köttur til bjargar..
Iða hefur tekið upp á því að príla mikið og reyna að komast á staði sem eru kannski aðeins fyrir ofan hennar getu. Þetta hefur auðvitað oftar en ekki endað með því að hún dettur hingað og þangað en sem betur fer aldrei neitt alvarlegt.

En í gærkvöldi var næstum farið illa, Iða frekar lúin, þetta hafði verið frekar langur dagur. Hún var svo næstum tilbúin í rúmið þegar hún bað um að fá að borða... og þar sem hún hafði borðað frekar lítið í kvöldmat ákvað ég að gefa henni eitthvað í gogginn. Við byrjum á sviðasultu, hún situr í stólnum ég við hliðina á henni og kattarklessan okkar liggur við fætur mér. Iða fær svo leið á sviðasultunni og vill fá súrmjólk.. aftur er það ekkert vandamál því ef hún borðar þá sefur hún betur...

Á meðan ég geri súrmjólkina klára í disk þá ákveður Iða að klifra niður úr stólnum og reyna að koma smá sviðasultu í köttinn - hann var ekkert voða spenntur. Svo segji ég henni að setjast því nú fái hún súrmjólk. Hún tekur stökk uppá hliðna á stólnum og hann byrjar að vagga. Úff þetta er svona atriði þar sem allt gerist í slow motion, og það versta við þetta er að þú einfaldlega getur ekki hreyft þig nógu hratt.. Iða missir takið á stólnum og ég sé hana bara detta beint aftur fyrir sig.
Á meðan á þessum hasar stóð var ég að hamast við að leggja frá mér súrmjólk skálina og taka þessi 3 skref yfir eldhúsið til að grípa hana - í paniki yfir því að geta ekki hreyft mig hraðar....

Ég rétt kem í tíma til að grípa stólinn á þeirri sek sem Iða skellur í gólfið... með rassinn - höfuðið lenti á kattarklessunni sem varð alls ekki var við þennan hasar í eldhúsinu fyrr en barnið lenti á honum!!! Hjúkk! Ég sem sá fyrir mér heilahristing og nótt á slysó endaði bara með léttum kossi á rassinn - bágtið - og allt búið :)
posted by Gógó @ 6:21 AM   0 comments
Tuesday, December 18, 2007
Jóla jóla
Iða er alveg að fíla þetta jóla dót - það er allt vólaveinahitt og vólaveinaþetta!

Fór á jólaball á leikskólanum um daginn, var víst alveg hrikalega hrædd við jólasveininn, hékk eins og apaungi utan á fóstrunni. En herti sig nú samt upp og fór og tók á móti pakkanum sínum frá honum - fékk mandarínu og bók um bíbí! Svo þegar ég kom í foreldrakaffið þá sagði hún mér eitthvað fullt um jólasveinin, ég skildi smá, endaði á HAHAHO og stökk svo í fangið á mér. Alveg næstu daga var alltaf að heyrast í minni.. "HAHAHO" en þetta átti líka til með að enda á því að hún kom hlaupandi, reykspólaði upp í fang og var voða hrædd við jólasveininn...

Mig langaði svo að sjá hana í kringum jólasveina að ég gerði svo heiðarlega tilraun til að fara með hana á jólaball Icebank síðasta laugardag, en vegna ófullnægjadi upplýsinga þá fann ég ekki staðin sem þetta var á og endaði á oftroðinni jólaskemmtun í Smáralindinni... en það var í sjálfusér allt í lagi - mig var bara búið að hlakka svo til að sjá Iðu og jólasveininn sama :/

Dúllan er svo klár fyrir jólin, búin að fatta að það er gaman að opna pakka - fékk að opna einn frá ömmu Dísu og svo auðvitað frá jólasveininum... vill helst eiga alla pakka sem hún kemur nálægt, í það minnsta halda á þeim! Fötin klár - á eiginlega bara eftir að ákveða hvað við eigum að gefa stubbu í jólagjöf... eða hvort við leggjum bara inn á reikningin hennar - hún fær hvort eð er svo mikið og kemur ekki til með að muna hvað er frá hverjum...
posted by Gógó @ 2:30 AM   0 comments
Thursday, November 15, 2007
Meira bros










Eitthvað ákvað skvísan að það væri inn að vera með tunguna út í þessari myndatöku...
posted by Gógó @ 4:50 AM   6 comments
Brosbarn










Myndir síðan Iða fór í Brosbarna myndatöku í sep!
posted by Gógó @ 4:43 AM   0 comments
Fallegust


Mín orðin 20 mánaða, farin að tala helling, pissa í kopp og stjórna eins og herforingi..
posted by Gógó @ 2:36 AM   0 comments
about me
My Photo
Name: Gógó
Location: Reykjavík, Iceland

Hér er ég; um mig; frá mér; til mín!

Þetta helst
Eldra efni
Um mig
Ég er næstum tveggja ára skessuskott og hér má lesa um ævintýri mín og svaðilfarir. Ég bý með mömmu og pabba í Laugardalnum og á einn risakött sem er gott að nota fyrir kodda
Uppáhaldsjólalag

Jólasveinar 1 og 8

Vinir
Template by
Free Blogger templates